salt á allt
27.11.2006 12:26:39 / signyasta

"she be act´n all DIVA"

R.I.P elsku Loppa.

Þú varst besta kisa í heimi.

og bara 13 ára, á besta aldri.

sætust.


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 11:01:35 / signyasta

"rétt eins og sumarið kemur og fer, geri ég það líka"

Sumarið er tíminn..... og þess vegna er þessi síða komin í frí. 


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 19:38:14 / signyasta

"Bollywood"

http://www.grapheine.com/bombaytv/play_uk.php?id=1128990

Þessi fær pottþétt gullpálmann.


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 23:14:45 / signyasta

"Ekki drekka þegar þú ert fullur" -drollan-

 

Ég játa, það er búið að vera gúrkútíð í bloggi mínu. Það má rekja til tölvuleysis, leti og stanslausra ferðalaga milli landshluta. Ég og mínar stelpur hafa verið duglegar að eyða bensíni og bjórbirgðum íslands......   Það er endalaust að gerast, og fyrir manneskju eins og mig sem þarf ekki að hafa áhyggjur af börnum, prófum né annarri vitleysu, er gaman að vera til.   

Ég viðurkenni það samt alveg að ég hef ekki verið nógu einbeitt í hestakeppnunum í vor. Ég hef litla sem enga skýringu á því... kannski er það hesturinn minn, sem er hálf skitsó eða ég sem er einnig hálf veil á geði.   Fyrir ykkur sem féllu á stærðfræði samræmdu er hálfur+hálfur jafnt og eitt stykki geðsjúklingur.  Við Kalíber (hesturinn) erum semsagt geðsjúk og það ekki endilega í góðum skilningi.

Ég er líka ágætur “benchwarmer” , eða það hef ég allavega heyrt og þar sem ég er komin með “hin eina sanna aukahlut”, lítinn hvolp þá smell ég alveg inn í hóp brekkudómaranna.

 

Litla dýrið heitir Tessa og er tveggja mánaða Border Collie tík. Hún og Dimma Steinsson voru eldhressar á Strandarhöfði eða Strandarhaugum eins og Hér og nú kýs að kalla það, um helgina. Með í för voru ég og UB sem gerðu allt og ekkert, töluðum um alla og engan og tókum það erfiða verkefni að okkur að baka franska súkkulaðiköku og smakka á eðalhvítvíni úr Napadalnum.    

 

Svo er stefnan tekin á Ístöltið og Geirmund næstu helgi. Ég hef ekki farið á ball með honum síðan hið fræga landsmótsball í Víðidal árið 2000, þar sem við vinkonurnar dodge-uðum undan brjáluðum dyravörðum og földum okkur inn á klósetti í 15 mínutur, eða þangað til að hann hætti að berja á hurðina og hóta okkur öllu illu.  Ásta náðist á hlaupum og var hent út en við Emý og Sigríður náðum á einhvern hátt að læðast framhjá tröllunum og inn í mannþvöguna.   Ég fæ enn gæsahúð af spenningi við tilhugsunina.  Við sáum einnig fólk njótast í bíl fyrir utan ballið það sama kvöld.  Það fannst okkur alveg rosalega ógeðslegt og ég ætlaði mér alltaf að finna út hvaða creep þetta var, þvi ég gleymi aldrei bílnum....

 

jæja, farin að aga "barnið".....  verið bless.   


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 15:38:22 / signyasta

"þar sem tveir hestar koma saman,.... þar er stóð"

The image “http://pic17.picturetrail.com/VOL839/3493172/9101686/137067762.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

Nýtt myndaalbúmim titlað: "Hestar og menn" hefur hafið starfsemi.
Ég verð dugleg að taka myndir og setja inn á um leið og mamma finnur myndavélina sem hún "týndi"......

» 5 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 21:31:24 / signyasta

"Að kyssa reykingamann er eins og að sleikja öskubakka"

Hey baby... drop that zero and get with the hero... in other words, you better come with me.

Þá er það ákveðið, ég verð í mixi með töppum Vestur-Landeyja í sumar. Ískyggilegt.              Ég verð samt búsett á Strandarhöfði eftir páska og frameftir sumri. Kem samt reglulega í bæinn, aðeins til að hrista mig og eyða peningum eins og sönn dreifbýlistútta gerir þegar hún svífur inn í Rvk.

Það verður alltaf opið hús hjá mér, svo ég ætlast til að allir komi einhverntíman milli páska og Landsmóts til mín í heimsókn. Ég splæsi morgunmat....

Annars er allt gott að frétta, eftir mikla baráttu er kvefið er loks að hörfa. Ég er loks að geta andað eðlilega og hætt að vera kvef-grenjandi allan dagin eins og Bachelorpía eftir höfnun. 

Kveðja, Signý Strand.

p.s. ég held ég hafi bara einusinni kysst reykingamann... ég man ekki hvort það bragðist eins og aska.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 18:26:20 / signyasta

"Golden, Ripe, Boneless Bananas, 39 Cents A Pound."

Enn og aftur herja veikindi á frumburð fjölskyldunnar, mig. Ég tel að langir reiðtúrar og samskipti mín við sjúklingurinn Unni B hafi orðið mér að falli þessu sinni. Ég ætla samt ekkert að erfa þetta við neinn, minn tími var komin. Það er ótrúlegt hve dagurinn virðist engan endi taka þegar maður manni leiðist heima. Ég píndi mig samt út í búð áðan ar sem skelkaður búðarsveinn afgreiddi mig í hasti, ég var hnerrandi stanslaust á vörurnar og með enga "hand-eye coordination", þannig að sumar vörur lentu ekki í pokanum þegar ég hugðist setja þær í og ég ætlaði ekki að koma 5000 kallinum í hendur hans, það endaði með því að ég kastaði peninginn í hann. Ég er komin á svarta listann hjá krónunni.

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 15:38:42 / signyasta

"I am a marvelous houskeeper. Every time I leave a man I keep his house."

It´s been five days since my last confession.

 

Ég hef svo sem ekkert mikið að segja.  Ég er annaðhvort í vinnunni eða upp í hesthúsi. Stundum geri ég mér glaðan dag og horfi á sjóvarpið. 

Ég er einnig gengin í Darkness hópinn og stunda næturreiðtúra.  Já, endilega misskildu þetta og glottu... já svona...... .... ... got it out of your system?

 

Darkness hópurinn er einmitt hópur fólks sem þú sérð ávallt á hestbaki eftir myrkur. Meðlimir þessa hóps má oft skipta niður í þrjár týpur:

 

Týpa A.   Fólk sem telur hafa undir sér all-svakalega MEGATRÓNÍSK leynivopn og vilja ekki að allir sjái þau fyrir keppni.

 

Týpa B.  Fólk sem hreyfir trunturnar í skjóli nætur.

 

Týpa C.  Fólk sem er vinnusick og kemur beint eftir vinnu og tamningarfólk.

 

Ég flokka mig sem týpu C. Ég sá bæði A. & B. í gær......   Það er allt að gerast þessa helgi, Frhskólamót, Ferming,  Ásta B comes to town og kvennatölt í Andvara þar sem ég og UB ætlum að taka til kostanna.  Eða reyna það allavega.      

 

Góðar stundir.


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 23:31:45 / signyasta

leit..........?

The image “http://www2.noticiasdot.com/stilo/contenido/especiales/2005/celebridades/pink/2006/stupid_girls/images/stupid_girls-03.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.


Okei, nú er komið að því elskurnar mínar. Sigríður Erla, ég skipa þig formann.  Ég vil stofna leitarflokksnefnd sem vinnur daga langa einungis í þeim tilgangi að finna út hvaðan þessi sólgleraugu koma.  Mig langar í þessi sólgleraugu.......  Ef það vildi svo skemmtilega til að einhver  veit hvaðan Pink fékk þessi Stupid girl gleraugu væri það vel þegið af sá manneskja gæti deilt með mér þeim mikilvægu upplýsingum.........................

over and out.

Signý


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 16:58:22 / signyasta

samantekt dagsins.

Í dag vaknaði ég klukkan 8:00 og var mætt fersk upp á skrifstofu klukkan 9. Þá las ég blaðið og fór að vinna, í hádeginu fór ég og fékk mér heilsusafa og hafraköku í laugum. Svo þurfti ég að skjótast í símann. Það var mikið af fólki. Svo keyrði ég upp í vinnu og fór að vinna..... hjálpaði Sigríði a scora eitt stykki krullujárn á frábæru verði, talaði í símann við mömmu og produceraði því að flytja hestinn minn austur í dag og aftiur heim á morgun.

...Mig langaði bara að prófa að gera eina svona ítar-færslu.  Hvernig nennir fólk að skrifa, hvað þá  að lesa þetta?  Ekki ég, og þessar 3 mínuntur fæ ég aldrei aftur. Þegar fólk spyr mig eftir 14 ár, "hvað varst þú að bralla á föstudaginn 17.mars, milli 16:30-16:33?"  þá get ég ekki gefið því betra svar en að ég var að skrifa um venjulega daginn minn. Ég var ekki að læra, ekki að ríða út og ekki að finna lækningu fyrir krabbameini, heldur að pikka inn nokkur óttalega tilgagnslaus orð inn í tölvu svo þau myndi nokkrar allasvakalega leiðinlegar setningar sem þá verða að hundleiðinlegri málsgrein.

Þetta var alltsaman tilraun.  Ekki halda svo a dagurinn minn sé eitthvað shit.  Hann er mjög skemmtilegur. Allt það SKEMMTILEGA er að fara gerast á eftir.  Ég er nebbl að spara allt það frábæra fyrir kvöldið.  Myndtaka, Barkamót, Austurferð og fleira er allt að fara skella á.     Unnur, hví ertu ekki hér?  mig vantar ferðapartner, ein spjall-nótt fyrir austan, rauðvín, Idol, hestar, mót......    

Kannski þú fljúgir bara til mín?   ea ea ea ea ea 

verið bless...... kveðja Signý


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 13:45:26 / signyasta

einn fyrir daginn

Kona nokkur var að versla í Bónus-verslun í hverfinu.

Hún var búin að setja 3 lítra af létt mjólk í körfuna ásamt 1 eggjabakka með
10 eggjum, 1/2 lítra af appelsínusafa,

1 höfuð kínakál, kaffipakka og bréfi af beikoni.

Ölvaður maður fyrir aftan hana í röðinni fylgdist með þegar hún raðaði
þessum hlutum á færibandið við kassann.

Þegar kassadaman tók til að lesa strikamerkin inn sagði drukkni maðurinn
hæglátlega: "Þú ert örugglega einhleyp"!

Konunni gramdist þessi ummæli drukkna mannsins en jafnframt fannst henni
athugasemdin skondin þar sem það var vissulega rétt, hún var einhleyp.
Hún virti fyrir sér þessa sex hluti á bandinu og furðaði sig á hvernig í
ósköpunum hann
gæti komið með svona fullyrðingu af þessum ósköp venjulegu innkaupum.

Forvitnin varð henni um megn svo hún sagði: "

Þetta er vissulega hárrétt hjá þér. Hvernig í ósköpunum geturðu séð það??" .
. .
og drukkni maðurinn svaraði: " Af því að þú ert ljót!"


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 14:18:57 / signyasta

Það er rosalega fagurt hér í Munaðarnesi. Undir stjörnubjörtum himni sofa birkivöxnu hlíðarnar og bjarminn af sumarbústuðunum hlýjar manni um hjartarætur. jamm...... 5 dagar í náttúrunni hafa skrítnar verkanir á mig. Ég er alveg "fixated" á stjörnunum. Það er langt síðan ég hef tekið mér tíma og horft á þær, þær eru mjög dáleiðandi. Ég er reyndar að koma af stað einhverju trendi hér á tökustað, að spotta gervihnetti. Ég er rosa klár að finna þá, tekur mig um 5 mínuntur að spotta einn. Allir útlendingarnir bíða rosa spenntir á hverju kvöldi eftir norðurljósunum en þau (ljósin) hafa ákveðið að heiðra þau ekki með nærveru sinni. Kannski það sé einhvert bad karma í gangi, því þetta fólk er allt afkomendur starfsmanna í útrýmingabúðunum forna. hver veit. Við erum að borða morgunmat, klukkan er 14.14. Sólarhringurinn er illa snúin, rétt eins og eftir partýtörnina um jólin. Hér flæðir allt í öli.... ég er ekki að meika það. nennið þið að senda mér sms, mér leiðist smá. ta darlings.

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 15:06:18 / signyasta

Smáauglýsingar DV....

___________________________________

Ég ríð að Snorrabraut 63. Efri bjalla.

___________________________________

Þetta er smáauglýsing úr einkamáladálk DV sem ég rakst á í gær. Setningin er orðrétt.

Sá þetta einhver annar???........ ískyggilegt!

og já, við hringdum í 118 og fengum þær upplýsingar að það er ein manneskja skráð fyrir þessu húsnæði. Maður að nafni Sigurður.

Er DV að ráða fólk beint úr Öskjuhlíðarskóla, eða bíða þangað til þau hafa lært að skrifa á Sólheimum?


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 10:23:07 / signyasta

einu sinni...

Í fimm daga hef ég ekki horft á sjónvarp. Í fimm daga hef ég vaknað með fuglunum og keyrt á tómri Sæbrautinni í vinnuna.  Í fimm daga hefur hesturinn sloppið við reiðtúr.  Í fimm daga hef ég sofnað fyrir klukkan tíu.  Það er samt gaman hjá mér.

Þessvegna hef ég ekkert að segja nema brandara sem ég þurfti nauðsynlega á að halda í gær! 

                                             THE LOVE DRESS
A woman stopped by unannounced at her son's house.  She knocked on the door then immediately walked in. She was shocked to see her daughter-in-law laying on the couch, totally naked. Soft music was playing, and the aroma of perfume filled the room.
"What are you doing?" she asked.
"I'm waiting for John to come home from work." The daughter-in-law answered.
"But you're naked!" the mother-in-law exclaimed.   "This is my love dress," the daughter-in-law explained.     "Love dress? But you're naked!"
"John loves me to wear this dress," she explained.
"It excites him to no end. Every time he sees me in this dress, he
instantly becomes romantic and ravages me for hours. He can't get enough of me".
      The mother-in-law left. When she got home
she undressed, showered, put on her best perfume, dimmed the lights, put on a romantic CD, and laid on the couch waiting for her husband to arrive.
Finally, her husband came home. He walked in and saw her laying there so provocatively.
"What are you doing?" he asked.
"This is my love dress," she whispered, sensually.
"Needs ironing, " he said, "What's for dinner?".

.....maður getur ekki annað en elskað þetta.


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 21:44:18 / signyasta

gotta have it.....

      Þessa daganna er ég að vinna eins og hundur og sofa eins og steinn. Lítið annað kemst að nema nokkur vel valin símtöl við ákveðina telpna um ákveðin mál....

Mig langar að byrja á að óska mér til hamingju með nýja brumman minn.  Hún hefur ekki official fengið nafn enn, og skora ég á alla að koma með tillögu.  (vá, hvað snobbvarnarráð er á yfirtíma núna í damage control)... ég er svo þreytt að mér er skít!
Ég fékk lyklana afhenda á rauða teppinu við lúðrablástur og ég get sagt ykkur það, Það er alveg SVART og HVÍTT að keyra nýja og gamla!  Ég er nú ekki mikil bílamanneskja en með þessari óbrjótandi akstursgleði í hjarta  held að ég verði bráðum með olíuklessur í framan, vinnandi við bílaréttingar in no time.....   slíkur er áhugin á þessari mögnuðu græju!

Það er lítið annað að gerast hjá mér, Unns komin heim og nú er ég að fara koma mér mjög vel fyrir með símtólið í einni og pepsí max í hinni og fá allt action seinustu viku beint í æð..... 

Er að fara út á land í nokkra góða daga og því verður örugglega lítið um bloggfærslur og annað kruðerí á þessum bæ....... þangað til,  lifið heil og verið góð við hvort annað.

                                   "SHE BE ACTING ALL DIVA"
                      


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan